Álfheimar. Ófreskjan

Álfheimar. Ófreskjan

Álfheimar. Ófreskjan

4.290 kr.

Vinirnir Konáll, Soffía, Pétur og Dagný hafa verið krýnd konungar í heimi álfanna. Konáll er alsæll í nýju hlutverki þótt hann kæri sig lítið um ábyrgðina. Fljótlega verða ungmennin vör við ill öfl sem gætu hafa slæðst úr öðrum heimum. Einnig er yfirvofandi hætta á að hin ógurlega ófreskja Vritra losni úr álögum. Þá gætu bæði konungsríkið og heimurinn liðið undir lok. Hvað hyggst galdrameistarinn Mestiok fyrir með fjórmenningana? Tekst þeim að rækta vináttuna þrátt fyrir allt sem gerst hefur? Og hvað er eiginlega Vritra?

Ófreskjan er þriðja bók af fjórum um fjögur ungmenni í heimi álfanna eftir prófessor Ármann Jakobsson, áður hafa komið út Bróðirinn og Risinn. Í bókaflokknum er tekist á við álfatrú á nýstárlegan og spennandi hátt.

  • Álfheimar. Ófreskjan, Prófessor Ármann Jakobsson
  • Káputeikning og hönnun: Atli Sigursveinsson, 2023
  • Innbundin, 140 x 215 mm
  • 208 blaðsíður