Góðborgarar

Góðborgarar

2.990 kr.

Grænmetisborgari framtíðarinnar er hér kynntur til sögunnar. Hann er ekki aðeins augnayndi heldur líka virkilega ljúffengur, girnilegur og ómótstæðilegur, meira að segja fyrir alæturnar. Bragð og keimur frá öllum heimshornum. Einstakar uppskriftir að næringarríkum grænmetisborgurum, brauði, sósum og hnossgæti.

„Ég kolféll fyrir borgurunum í dásamlega litríku bókinni hennar Ninu Olsson. Glæsilegar ljósmyndirnar kveikja ekki aðeins á bragðlaukunum heldur einnig á lönguninni til að hefjast handa.“ Áslaug Snorradóttir, ljósmyndari og fagurkeri.

  • Veggie Burger Atelier, Nina Olsson
  • Helga Soffía Einarsdóttir þýddi, 2018
  • Innbundin, 213 x 262 mm
  • 160 blaðsíður